Æj æj

Óvænt afmælisveisla fer úr böndunum:

Sjá nánar hér 


Engar brúðkaupsgjafir

Jón Ásgeir og Ingibjörg Pálma óska eftir að verðmæti brúðkaupsgjafa renni til Sólarsjóðsins sem að er sjóður fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra.  Sagt er í Sirkus í dag að þetta mun létta mörgum veislugestum byrðina þar sem að erfitt var að ákveða hvað ætti að gefa þeim, fólki sem að er með nóg á milli handanna og á eflaust marga hluti. 

bildeÞetta er gott framtak og er ég ánægður með þetta hjá þeim.  Ég hef oft heyrt að Jóhannes í Bónus sé duglegur að koma fram með gjafir og fleira fyrir bágstadda þegar að dapur fréttaflutningur hefur verið um Bónus, og nú undanfarið hefur auðvitað verðstríðið verið mikið í umræðunni, en boðskortin fóru út fyrir nokkru síðan. Reyndar bara dagsetning og svo nánari upplýsingar síðar.  Er þetta allt ein heljarinnar markaðsherferð eða bara plain and simple góðmennska? Já, ég held það síðarnefnda sé nú málið... eða vona það allavega =)


Á þessum tíma eftir 2 vikur...

.... verð ég á Spáni húhaaa...... Grin

Og fínar móttökur sýnist mér:

aqualandia2-125x


Orðabók fyrir tilvonandi eiginmenn

Áður en stóra skrefið er tekið, þá verðum við að átta okkur á nokkrum staðreyndum.  Það sem að frúin segir er ekki alltaf sem hún meinar.  Sjá útskýringar meðfylgjandi:

 

Við verðum = Ég vil

Þú ræður = Þér ætti að vera orðið ljóst hvað ég vil

Gerðu það sem þú vilt = Ég næ mér niður á þér síðar

Við þurfum að ræða saman = Ég þarf að leggja fram nokkrar kvartanir

Ég er ekkert æst = Auðvitað er ég æst, fávitinn þinn

Ég er ekkert tilfinningasöm, ég er ekki að gera úlfalda úr mýflugu = Ég er á túr

Slökktu ljósin = Ég er ekki sátt við sjálfa mig

Bílinn er að verða bensínlaus = Farðu og fylltu tankinn

Ruslapokinn er fullur = Farðu út með ruslið

Hundurinn er að gelta = Farðu fram úr og athugaðu hvort eitthvað sé að

Okkur vantar ný gluggatjöld = ...og parket og málningu og húsgögn og teppi...

Mig vantar nýja skó = Ég kann ekki lengur við hin 40 pörin

Þú verður að læra að tjá þig = Vertu bara sammála mér, það er auðveldara

Ertu að hlusta = Of seint, þú ert búinn að vera

Þetta er allt í lagi = Þú færð að borga fyrir þetta síðar

= Nei

Nei = Nei

Kannski = Nei

Fyrirgefðu = Þú átt eftir að sjá eftir þessu

Hvernig finnst þér maturinn = Það er fljótlegt að búa þetta til svo það er best fyrir þig að venjast honum

Var barnið að gráta = Drullaðu þér á lappir og sinntu barninu

Ég er ekki að öskra = Ég er að öska af því það er mikilvægt sem ég er að segja

Elskaru mig? = Ég er rétt bráðum að fara að biðja þig um nokkuð sem kostar drjúgan pening

Hvað elskaru mig mikið? = Ég gerði nokkuð í dag sem þú átt eftir að hata mig fyrir

Ég verð enga stund = Farðu úr skónum og komdu þér vel fyrir fyrir framan sjónvarpið á meðan þú bíður

Er rassinn á mér siginn? = Segðu mér að ég sé falleg

Baðherbergið er svo lítið að maður kemst þar varla fyrir = Ég vil nýja íbúð

Við ætlum bara að kaupa súpuskálar =Ég þarf líklega ekki að taka það fram að við munum líka kíkja við í nokkrum fatabúðum, líta við í snyrtivöruverslunum og svo var ég að frétta að það væru komnar nýjar vörur í búsáhaldadeildina og að það væri útsala í sængurfatadeildinni og Ó, guð, hvað þessi bleiku rúmföt færu vel við svefnherbergið ef við myndum mála það í stíl og skipta um gluggatjöld.


Gott innlegg í umræðu síðust daga um Negrastrákana

Nominated by UN as the best Poem of 2006 - Written by an African Kid
 
When I born, I black 
When I grow up, I black
When I go in Sun, I black
When I scared, I black
When I sick, I black
And when I die, I still black

 
And you white fellow 

When you born, you pink
When you grow up, you white
When you go in sun, you red
When you cold, you blue
When you scared, you yellow
When you sick, you green
And when you die, you grey

And you calling me colored??


Brandari dagsins

Lítil gömul kona kom í Hagkaup og setti 2 dósir af dýrasta kattarmatnum sem til var í innkaupakörfuna. Síðan fór hún að kassanum til að borga og sagði við kassadömuna "ekkert nema það besta handa litla kettlingnum mínum". Kassadaman sagði þá "því miður get ég ekki selt þér kattarmat nema að þú getir sannað það að þú eigir kettling, það er svo mikið af gömlu fólki sem kaupir kattarmat til að borða sjálft, verslunarstjórinn vill fá sönnun þess að þú eigir kött."301940A

Litla gamla konan fór heim og náði í kettlinginn sinn og sýndi kassadömunni og fékk þá kattarmatinn keyptan. Næsta dag fór litla gamla konan aftur í Hagkaup og í þetta skiptið setti hún pakka af hundakexi í innkaupakörfuna, sem hún ætlaði að gefa hundinum sínum yfir Jólin. Kassadaman sagði þá "því miður get ég ekki selt þér hundakex nema að þú getir sannað það að þú eigir hund, það er svo mikið af gömlu fólki sem kaupir hundakex til að borða sjálft, verslunarstjórinn vill fá sönnun þess að þú eigir hund."

Vonsvikinn og svekkt fór litla gamla konan heim og náði í hundinn sinn og sýndi kassadömunni og fékk þá hundakexið keypt. Daginn eftir kom litla gamla konan aftur í Hagkaup og hélt á dollu sem var með gati á lokinu. Litla gamla konan bað kassadömuna að stinga puttanum í gatið, "nei ég geri það ekki því þú gætir verið með snák í dollunni." Litla gamla konan fullvissaði kassadömuna um að svo væri ekki. Þá stakk kassadaman puttanum í gatið á dollunni og tók hann út og sagði við litlu gömlu konuna "þetta lyktar eins og mannaskítur." Litla gamla konan brosti út að eyrum og spurði, "vina mín get ég núna fengið að kaupa nokkrar klósettrúllur?"


12 nóv

Ég á afmæli í dag

Ég á afmæli í dag

Ég á afmæli í daaag

 Ég á afmæli í dag Wizard

korkur


Mynd dagsins

Flott markaðsherferð =)

pic16549


This is a must have !


Bessastaðir með í Hvað er í matinn?

Já, var að fá póst frá forsetaembættinu.  Þau gátu ekki opnað viðhengið þegar við sendum innkaupalistann fyrir vikuna.  En það ætti að vera komið í lag núna. Ætli Dorrit sé að elda? Trúlega ekki, en það er ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttur notendahópurinn er á síðunni okkar www.hvaderimatinn.is

Snilld.

713cb622679fcdb


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband