Hvert stefnir ungdómurinn?

Ég hef oft heyrt fréttir og lesið blogg um unglinga sem að vinna í búðum og vita ekki hvað ýmislegt heitir eða þíðir, en ég var nú alveg sleginn út af laginu í morgun þegar ég fór í Nóatún að versla inn fyrir matinn í kvöld.  Setti ákveðið grænmeti í poka og kom að kassanum.  Ungi strákurinn (íslenskur nota bene) spurði hvort ég vissi hvað þetta heitir, svo hann gæti leitað í "plu" listanum sínum.  Mitt  svar: Já, þetta eru gulrætur !!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband