Laugardagur, 29.3.2008
Hvert stefnir ungdómurinn?
Ég hef oft heyrt fréttir og lesið blogg um unglinga sem að vinna í búðum og vita ekki hvað ýmislegt heitir eða þíðir, en ég var nú alveg sleginn út af laginu í morgun þegar ég fór í Nóatún að versla inn fyrir matinn í kvöld. Setti ákveðið grænmeti í poka og kom að kassanum. Ungi strákurinn (íslenskur nota bene) spurði hvort ég vissi hvað þetta heitir, svo hann gæti leitað í "plu" listanum sínum. Mitt svar: Já, þetta eru gulrætur !!!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.