Fimmtudagur, 13.3.2008
Dóttir mín ljósmyndarinn
Nú verður Ísold Klara 4ja ára í júní. Henni finnst voðalega gaman að taka myndir og biður okkur oft að segja "sís" í myndavélina okkar gömlu sem að hún má leika sér með. En hún veit að það er ekki alvöru, og því hefur hún fært sig yfir í digital vélina okkar og tekur myndir útum allt. Mér sýnist hún bara hafa gott auga fyrir hlutunum og verði fín í þessu. Læt hér nokkrar fylgja með, og einnig ein af henni þegar hún fékk að fara á hestbak með Kristínu frænku, og alveg óhrædd við hestana.
Athugasemdir
Litla prinsessan er ekkert smá lík þér...... og efnileg á ljósmyndasviðinu
Guðný M, 13.3.2008 kl. 13:18
Já, maður neitar víst ekki fyrir þessa snúllu
Felix G, 13.3.2008 kl. 14:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.