Föstudagur, 23.11.2007
Megaklúður Dominos
Við hjónaleysin ákváðum í gær að taka þátt í Megaviku Dominos. Pöntuðum 2 hot wings skammta, 1 kartöflubáta og 1 Combo bakka. Ranch sósur með öllu nema Hunangssósa með combóinu. Hringdum um kl. 18:00 og mátti ég koma 10 min. síðar á Höfðabakkann til að sækja.
Ég var kominn þangað um 18:20 og var bókstaflega troðið þar inni. Halarófuröð en gekk þokkalega. Loksins kom að mér og ég borgaði ég pakkann kl. 18:45. Kom heim með þetta allt svoldið kalt, og þá vantaði 3 ranch sósur. Vængir eru ekki þeir sömu án sósunnar, það er alveg á hreinu. Ég hringdi og talaði við vaktsjóra, hún vildi endilega senda mér sósu og ég spurði hvort það tæki ekki óratíma. Nei nei, sendi með næstu ferð. Ok sagði ég og við biðum í smá stund, svo fórum við að narta í matinn og endanum var hann búinn. Fann BBQ sósu í ískápnum hjá okkur og notuðumst við hana. Kl. 20:15 kom sósan. (klukkutíma eftir að ég hringdi). Ég var nú bara búinn að gleyma henni. Og maturinn auðvitað löngu búinn. Ég hringdi og sá vaktstjórinn að þetta var ekki hægt. Fæ fría pizzu hjá þeim næst.
Athugasemdir
Sæl Felix.
Þú ert ótrúlegur tuðari, vertu bara þakkláttur fyrir að fá að panta þarna, núna ertu kominn á svartan lista hjá þeim, spurning hvað þú færð næst.
Maður á aldrei að kvarta við skyndibitastaðina því maður veit ekkert hvað sett er í matinn næst þegar maður pantar :):)
Hafðu góða helgi
Guffi
Guffi (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 10:22
heheh.. já gæti verið rétt. Þá panta ég bara á símanúmerið hennar Klöru. Vonandi að enginn setji eitthvað óæskilegt í matinn þá. En þetta var þeirra klúður, mistök gerast og ég var bara að benda þeim á það í rólegheitum og svona vildu þeir afsaka sig. Málið dautt. Eigum við að ræða það eitthvað?
Felix G, 23.11.2007 kl. 10:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.