Alicante

Nú er ég ánægður með mig. Pantaði í gær viku ferð til Alicante fyrir okkur hjónaleysin og Ísold Klöru. Litla fjölskyldan bara að skella sér í sólina.  Við fórum öll saman síðast um jólin með stórfjölskyldunni minni á skíði.  Svo að þetta verður aðeins öðruvísi.  Fínt að komast aðeins í heitara hitastig og stytta veturinn, enda búið að rigna núna í hvað.. 3 mánuði liggur við. Svo á ég líka afmæli í nóvember þannig að mér finnst ég eiga þetta skilið Wink

Plúsferðir voru með þvílíkt tilboð á fluginu út, og svo fékk ég gott verð í bílaleigubíl hjá Margréti í Hertz. Þetta er íbúðin: www.sumarogsol.net

Ef þið hafið áhuga á að fara þangað og nýta þessa íbúð þá tek ég líka við pöntunum þar sem að hún er á okkar vegum hér hjá Hvað er í matinn? Já, við erum í hinu og þessu, fjólhæfir strákar og stelpur Grin

 

i17bSundlaugin við íbúðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Felix G

Hljómar vel Magna, það verður eflaust gott að fara einmitt í febrúar og apríl svona þegar skammdegið er orðið svoldið langþreytt. Þá á ég eftir að öfunda þig =)

Felix G, 26.10.2007 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband