Vinna og fangelsi

Ef ske kynni að þú myndir einhvern tíman rugla þessum tveimur
stöðum saman, þá vildi ég bara gera greinarmun á þeim. 

Í fangelsi ...   eyðir þú mestum tíma þínum í klefa
sem er 10x10 fet 
Í vinnunni ... eyðir þú mestum tíma þínum í bás
sem er 8x8 fet 

Í fangelsi ... færðu þrjár máltíðir á dag frítt 
Í vinnunni ...færð þú pásu fyrir eina máltíð og þú verður að borga fyrir hana
sjálf(ur) 

Í fangelsi ... færðu að sleppa fyrr út ef þú ert dugleg(ur) og
þæg(ur)
Í vinnunni ... færðu meiri vinnu ef þú ert dugleg(ur) og þæg(ur)


Í fangelsi ... opna og loka verðirnir öllum dyrum fyrir þig 
Í vinnunni ... þarftu að ganga um með lykla og opna allt
sjálf(ur) 

Í fangelsi ... geturðu horft á sjónvarpið og spilað leiki eftir
eigin hentisemi 
Í vinnunni ...   ertu rekin(n) fyrir að horfa á sjónvarpið og
spila leiki 

Í fangelsi ...færðu þitt eigið klósett
Í vinnunni ...þarftu að deila klósetti með samstarfsfólki sem
mígur á setuna 

Í fangelsi ...mega fjölskyldan og vinir koma í heimsókn 
Í vinnunni ...máttu ekki einu sinni tala við fjölskylduna né
vinina 

Í fangelsi ... splæsa skattgreiðendur öllu fyrir þig og þú þarft
ekkert að gera í staðinn 
Í vinnunni ... þarftu að borga fyrir allan kostnað og þeir draga
skatt af laununum   þínum til að borga   undir fangana 

Í fangelsi ...verðurðu að þola sadista verði 
Í vinnunni ...eru þeir kallaðir yfirmenn... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný M

En hvað með frelsið....er það bara ofmetið eða......

Guðný M, 25.10.2007 kl. 14:17

2 Smámynd: Felix G

Hehehe... já þetta er nýi vinnustaðurinn minn... og þar er ÉG yfirmaðurinn =)

Annars held ég að frelsið sé ofmetið. 

Felix G, 26.10.2007 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband