Föstudagur, 5.10.2007
Back in the 80´s
80´s tíminn var víst ansi mikið stuð. Flottur klæðnaður sem að þykir ansi úreltur nú til dags, en samt ekki því að maður er að sjá fólk í spandexi og litskrúðugum fatnaði á labbi útum allt. Allt kemur þetta í hringi. En þetta myndband er alveg snilld sem að ég sá á síðunni hans Chrissa vinar míns, hver man ekki eftir þessu lagi? Takið eftir sokkunum þegar súmmað er upp að þeim, bara snilld. En hvað er þetta með loftnetsstöngina í armbandsúrinu? Eins gott að stinga ekki augað úr einhverjum.
Sjá myndband hér
Góða helgi.
Athugasemdir
Er ekki loftnetið vegna þess að úrið á líka að vera talstöð?
Annars er þetta bara tíska þess tíma. Ég er viss um að þú lítur hallærislega út á 20 ára gömlum myndum árið 2027 ;)
Björn (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 16:19
magnað
Einar Bragi Bragason., 5.10.2007 kl. 16:29
Trúlega rétt hjá þér Björn, nema að tískan í dag verði töff eftir 20 ár =)
Felix G, 8.10.2007 kl. 09:45
Eins sagt hefur verið þá verðum við að læra að fyrirgefa tískunni!! Það sem 80´sið virkar það vinsælasta í Singstar allavegana um helgina
Sigga Hrönn, 8.10.2007 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.