Þriðjudagur, 21.8.2007
Superbad
Ég sá alveg snilldarmynd í gær í Smárabíó. Smellti mér á boðsýningu á Superbad og tók hlauparann Oddgeir bróðir með og mágkonu mína (þau eru að nálgast fimmtugsaldurinn) og svo hún Anna sem að gistir hjá þeim þar sem að hún býr á Vopnafirði og er að koma sér fyrir og hefja nám í MH. Nema hvað, við lágum öll í krampa á þessari mynd. Hún er um 3 nörda sem að eru að klára high school og nú er málið að komast í party, detta í það og finna sér unga snót. Hljómar eins og American Pie en er ekkert lík henni. Mæli með þessari ef þú vilt hlæja:
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.